Til leigu um 756,8 m² skrifstofuhúsnæði á 2. hæð (gengið beint inn af bílastæði að sunnanverðu) við Urðarhvarf í Orkuhúsinu í Kópavogi. Húsnæðið getur verið tilbúið til afhendingar með 3-6 mánaða fyrirvara.
Nánari lýsing: Húsnæðið er óinnréttað í dag en fyrirkomulag þess getur verið ýmist opin rými eða lokuð að hluta, allt eftir þörfum væntanlegs leigjanda. Gólfefni, loft, lýsing getur verið í samráði við leigjanda. Aðgengi fatlaðra er gott. VSK leggst við leigufjárhæðina.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali, s. 897 7086 hmk@jofur.is