Til leigu 727,8 m² atvinnuhúsnæði, endbil neðan við húsið við Tónahvarf 5 í Kópavogi. Tilbúið til afhendingar innan þriggja mánaða.
Tvennar innkeyrsludyr eru á húsnæðinu. Grunnflötur jarðhæðar er 523 m² en milliloft er 204,8 m².
Nánar um hönnun: Hæðir skiptast í grunnflöt sem er með aðkomu fyrir neðan hús og ásamt aðkomuhæð við Tónahvarf. Um 25% af heildarstærð er með steyptu millilofti sem er hægt að nýta sem skrifstofur eða minni lager.
Lofthæð eru frá 6 – 7,5 metrum að hæð og milliloft frá 3 – 4,2 metrum að hæð.
Rýmum verður skilað með salernum, ræstirými ásamt kaffistofu.
Húsin eru nýtt undir ýmisskonar starfsemi svo sem heildsölur, skrifstofur, verslanir og vörulager.
Hafðu samband við Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala í síma 824-6703, olafur@jofur.is eða Helga Má Karlsson, löggiltan fasteignasala í síma 897-7086, helgi@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.