Til leigu 121 m² verslunar-/ þjónustuhúsnæði auk 88,3 m² lagerrýmis í kjallara, samtals 209,3 m² í nýbyggðu og glæsilegu húsnæði við Grensásveg 1b. Áætlað er að húsnæðið verði tilbúið til afhendingar um og uppúr miðju þessu ári 2024.
Nánari lýsing: Skiptist upp í opið verslunarrými, starfsmannaaðstöðu, kaffistofu og snyrtingar. Lofthæð er aukin eða um 3,8 m. Gert er ráð fyrir að gólf verði flotað, ofnar og allt rafmagn komið en lýsing og aðrar innréttingar eru leigjandans. Húsnæðið getur vel hentað rekstri verslunar eða annarrar þjónustu. Næg bílastæði eru í bílakjallara hússins. Trygging sem svarar 6 mánaða húsaleigu með virðisaukaskatti skal lögð fram fyrir afhendingu húsnæðisins.
VSK leggst við leigufjárhæðina.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson, löggiltur fasteignasali í síma 897 7086 tölvupóstur hmk@jofur.is eða Ólafur Jóhannsson, löggiltur fasteignasali í síma 824 6703 tölvupóstur olafur@jofur.is