Til leigu eða sölu – Síðumúli 29, 108 Reykjavík
Jöfur fasteignasala kynnir til sölu eða leigu snyrtilegt og mikið endurnýjað skrifstofuhúsnæði á 2. hæð að Síðumúla 29 í Reykjavík, samtals 174,0 m².
Húsnæðið skiptist í fimm rúmgóðar og bjartar skrifstofur, fundarherbergi, móttöku, eldhús með borðkrók og snyrtingu.
Húsnæðið hefur verið töluvert endurnýjað á undanförnum árum, meðal annars gólfefni, lýsing og raflagnabúnaður. Um er að ræða vel skipulagt og vistlegt skrifstofuhúsnæði á góðum stað miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Laust fljótlega samkvæmt samkomulagi.
VSK bætist ekki við leiguverð.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali, 861 0511, magnus@jofur.is