Til leigu 833 m² verslunarhúsnæði að meðtalinni sameign við Skeifuna 10 í Reykjavík. Laust strax.
Verslunarhæðin er tvískipt, um 660 m² verslunarrými með gólfsíðum gluggum allan hringinn og svo er um 170 m² opið rými þar sem er stór eldhúsinnrétting og útgengi út á svalir. Í stærri hlutanum eru snyrting, kaffikrókur, ræstiherbergi og tæknirými. Góð lofthæð. Gólf eru með lituðu floti.
Sameign er snyrtileg, flísar á gólfi og lyfta á milli hæða til staðar.
Bílakjallari undir húsinu er á tveimur hæðum og er keyrt inn í hann við austurenda hússins. Möguleiki er á að leigja bílastæði í kjallara.
Hjólageymsla og búningsaðstaða er í kjallara.
Hafðu samband við Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala í síma 824-6703, olafur@jofur.is eða Magnús Kristinsson, löggiltan fasteignasala í síma 861-0511, magnus@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.