Til leigu 660 m² skrifstofu- og þjónustuhúsnæði að meðtalinni sameign á 2. hæð við Skeifuna 10 í Reykjavík. Laust strax.
Hæðin skiptist í tvö stór opin rými, þrjár skrifstofur og fundarherbergi. Annað opna rými er með aukinni lofthæð og hefur verið nýtt sem verslun. Tvær snyrtingar og ræstikompa. Bjart húsnæði með glugga allan hringinn. Svalir.
Sameign er snyrtileg, flísar á gólfi og lyfta á milli hæða til staðar.
Bílakjallari undir húsinu er á tveimur hæðum og er keyrt inn í hann við austurenda hússins. Möguleiki er á að leigja bílastæði í kjallara.
Hjólageymsla og búningsaðstaða er í kjallara.
Hafðu samband við Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala í síma 824-6703, olafur@jofur.is eða Magnús Kristinsson, löggiltan fasteignasala í síma 861-0511, magnus@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.