Til leigu erslunarhúsnæði á jarðhæð að Skipholti 35, 105 Reykjavík, alls 700 m². Laust strax.
Húsnæðið skiptist í bjart og rúmgott verslunar- og þjónusturými auk stórs lagerrýmis. Verslunarhlutinn er með stórum gluggum, góðri lofthæð og steyptu gólfi. Þar eru fastar innréttingar, afgreiðsluborð, lýsing og afmörkuð rými sem nýtast vel fyrir skrifstofu, fundarherbergi eða aðra starfsemi. Lagerrýmið er rúmgott og opið með góðu aðgengi. Miklir möguleikar til nýtingar eftir þörfum kaupanda. Hluti þess er með parketi á gólfi. Í húsnæðinu eru salerni, sturta og þrifa-/starfsmannaaðstaða. Eignin hentar vel fyrir verslun, þjónustustarfsemi eða fyrirtæki sem þurfa að sameina gott móttöku- og verslunarrými við rúmgóðan lager.
VSK bætist við leiguverð.
Nánari upplýsingar veitir Veronika Steinunn Magnúsdóttir, s. 6981561, veronika@jofur.is