Skipholt 35, 105 Reykjavík
790.000.000 Kr.
Lager - Iðnaðarhúsnæði
0 herb.
2191 m2
790.000.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
1965
Brunabótamat
443.400.000
Fasteignamat
619.950.000

Jöfur atvinnuhúsnæði s. 534-1020 kynnir: 

Til sölu skrifstofu-, verslunar- og lagerhúsnæði að Skipholt 35, 105 Reykjavík, alls 2191 fm.

Skráð á 7 fastanúmerum en opið er á milli flestra eigna og eru þær nýttar saman.

Á jarðhæð bakatil eru lagerrými með nokkrum innkeyrsludyrum. 
Á jarðhæð að framanverðu er móttaka og söluskrifstofa. Nýlega innréttað á glæsilegan hátt.
Skrifstofur á 2. og 3. hæð eru endurinnréttaðar.

1. hæð:  700,5 fm. verslunarhúsnæði á fyrstu hæð. Um það bil 350 m² eru innréttaðir fyrir afgreiðslurými, tvö fundarherbergi og salerni starfsmanna.  Restin af þessari hæð u.þ.b. 350 m² eru innréttaðir sem mótttaka og þar innaf er lagerhúsnæði og snyrtingar.  Frá lagerhúsnæðinu er op í gólfi til að koma vörum frá móttökulager í kjallara upp á efri lagerinn.

2. hæð:  Á annari hæðinni er skrifstofurými 202,4 m² sem hefur verið endurnýjað að innan.  Þar er opinn salur, tvær snyrtingar, eldhús og matsalur.  Annar salur og stór skrifstofa sem hægt er að opna á milli með opnanlegum vegg á braut. 

3. hæð:   Efsta hæð er 202,4 m² með opnu skrifstofurými, fjórum stórum skrifstofum, fundarsal, eldhúsi og snyrtingu. 

Kjallari: Í kjallara er um 1085 m² lagerhúsnæði með innkeyrsluhurðum. Niðurföll eru til staðar.  

Sameign er rúmgótt stigahús (mögulegt að koma fyrir lyftu) með náttúrudúk á gólfum.
Hús er að hluta álklætt að utan.
Lóð er malbikuð að framan með góðum bílastæðum og steyptri gangstétt fyrir framan húsið. Baka til er aðkoma fyrir gáma og vörumóttöku.  Steypt plan á lóðinni að aftan og á aðkomu til hliðar við húsið.   

Á lóðinni er fjöldi bílastæða.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali, 861 0511, [email protected]

Kaupandi greiðir stimpilgjald af kaupsamningi, sem er 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila af fasteignamati eða samkvæmt annarri upphæð sem sýslumaður ákveður hverju sinni. Greiði kaupandi hluta kaupverðs með láni, þá greiðir hann lánveitanda lántökugjald og skjalagerðarkostnað. Kaupandi greiðir allan kostnað við yfirtöku áhvílandi lána. Kaupandi greiðir þinglýsingu kaupsamnings, afsals og veðskjala og er kostnaður við það kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Kaupandi greiðir umsýslugjald til Jöfurs ehf. að fjárhæð kr. 77.500 ,- 


Hafðu beint samband við starfsmenn Jöfurs:
Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali - 863-5868
Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali - 897-7086
Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali - 824-6703
Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali - 861-0511

Kynntu þér fleiri eignir og þjónustu Jöfurs atvinnuhúsnæðis á www.jofur.is

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.