Jöfur atvinnuhúsnæði s. 534-1020 kynnir:
Til leigu vandað 161,4 m² skrifstofuhúsnæði að meðtalinni sameign á 2. hæð við Ármúla 32 í Reykjavík. Laust samkvæmt samkomulagi. Lyfta í sameign.Húsnæðið skiptist í tvö stór vinnurými, eitt fundarherbergi, rúmgóða skrifstofu og kaffistofu með eldhúskrók.
Á gólfum er lakkaður korkur. Gluggar eru á þrjá vegu. Óbein lýsing af bestu gerð og frábær hljóðvist.
Við endurbætur húsnæðisins var lögð áhersla á að skapa þægilegt vinnurými sem tekur tillit til heilsu og umhverfis. Notaðar eru bestu fáanlegar loftaplötur til að tryggja góða hljóðvist.
Ljósleiðaratenging til staðar. Húsnæðið má aðlaga að þörfum leigjanda.
Virðisaukaskattur bætist við leiguverð.
Hafðu samband við Magnús Kristinsson, löggiltan fasteignasala í síma 861-0511, [email protected] eða Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala í síma 824-6703, [email protected] til að fá upplýsingar um eignina.
Hafðu beint samband við starfsmenn Jöfurs:
Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali - 863-5868
Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali - 897-7086
Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali - 824-6703
Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali - 861-0511
Kynntu þér fleiri eignir og þjónustu Jöfurs atvinnuhúsnæðis á www.jofur.is