Til leigu 215,2 m² skrifstofuhúsnæði á jarðhæð við Sundagarða 2 í Reykjavík. Laust strax. Næg bílastæði.
Nánari lýsing: Húsnæðið skiptist upp í opið vinnurými, 4 lokaðar skrifstofur, 1 fundarherbergi, rúmgóða kaffistofu með innréttingu auk geymslurýmis. Kerfisloft og lýsing í loftum, parket og flísar að hluta á gólfum. Snyrting er í sameign. Aðgengi fatlaðra er gott beint inn af götu/ bílastæðum. Í kjallara er aðgengi að æfingasal og sturtu-/ búningsaðstöðu. Í lokuðum bílakjallara hússins er hægt að fá leigð bílastæði og auk þess er aðstaða til þess að geyma reiðhjól. Tæplega 6 m² geymsla í kjallara hússins fylgir þessu húsnæði. Húsnæðið getur verið sem verslunarhúsnæði með sýningarsal og lokuðum skrifstofum fyrir sölumenn. VSK leggst ekki við leigufjárhæðina.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson, löggiltur fasteignasali s. 897 7086 hmk@jofur.is