Jöfur logo
Skráð 16. júlí 2026

Fossaleynir 21

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
5,476 m2
10 Herb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
1.398.450.000 kr.
Brunabótamat
1.890.650.000 kr.
Byggt 1999
Sameiginlegur
Jöfur atvinnuhúsnæði kynnir til leigu Fossaleyni 21 í Reykjavík, öflugt og afar vel skipulagt atvinnuhúsnæði á eftirsóttum stað í Grafarvogi.

Um er að ræða samtals 5.476 m² af lager-, skrifstofu- og þjónusturými, með góðri aðkomu fyrir vöruflutninga og stutt í stofnbrautir.

Húsnæðið hentar sérstaklega vel fyrir heildverslun, innflutning, dreifingu, framleiðslu eða aðra starfsemi þar sem þörf er á góðri lageraðstöðu, skilvirku vöruflæði og vönduðu skrifstofurými.

Nánari lýsing:
Samtals 5.476 m² af lager-, skrifstofu- og þjónusturými.
6 gámahleðsludyr auk nokkurra innkeyrslu- og vörudyra sem skapa fyrsta flokks aðstöðu fyrir vörumóttöku og afgreiðslu.
Tvö vöruhús með 10 - 12 metra lofthæð.
Skrifstofurými eru á fleiri en einni hæð með fundarherbergjum, kaffiaðstöðu, mötuneyti og góðri starfsmannaaðstöðu.
Stórt athafnasvæði á lóð með góðu aðgengi fyrir flutningabíla og fjöldi bílastæða.
Í húsnæðinu er rými sem áður var nýtt sem frystigeymsla. Með endurnýjun kæli- og frystibúnaðar gæti það nýst á ný sem frysti- eða kæligeymsla, eftir þörfum nýs leigjanda.
Húsnæðið býður upp á sveigjanlegt skipulag sem hentar fjölbreyttri atvinnustarfsemi.

Nánar um stærðir:
Húsnæðið skiptist í tvær einingar sem tengdar eru saman með millibyggingu. Annar hlutinn er um 1.200 m² lager og um 460 m² af skrifstofum á tveimur hæðum. Hin byggingin er um 900 m² lager, um 300 m² kæli-/frystirými og um 500 m² hleðslusvæði milli gámadokka og lagers. Á 2. og 3. hæð nýrri byggingarinnar eru rúmgóðar skrifstofur, um 580 m² á 2. hæð og um 560 m² á 3. hæð. Tengibyggingin tengir húsin saman er um 300 m² geymslu- og stoðrými. Lyfta er í húsinu.

Fossaleynir 21 er sérhannað lager- og þjónstuhús, vel staðsett á vaxandi athafnasvæði Reykjavíkur, með góðum aðkomuleiðum.

Nánari upplýsingar veita Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali, 861 0511, magnus@jofur.is eða Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali, 824-6703, olafur@jofur.is
Byggt 2004
3,602.6 m2
Fasteignanúmer
2243475
Byggingarefni
Stál
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
1.189.700.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Jöfur fasteignasala sérhæfir sig í faglegri ráðgjöf og þjónustu við kaup, sölu, leigu og verðmat atvinnuhúsnæðis, með persónulegri aðstoð fyrir kaupendur, seljendur, leigjendur og fjármálastofnanir. Hafðu samband í síma 534-1020 til að ræða þínar þarfir.
Hafðu samband
sala@jofur.isS: 5341020
Suðurlandsbraut 4a
kt. 510507-0960
Hlekkir
© Copyright 2026 - Jöfur
Knúið af
Fasteignaleitin