Jöfur logo
Skráð 19. nóv. 2026

Reykjavíkurvegur 64

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
600 m2
Verð
Tilboð
Fasteignamat
179.950.000 kr.
Brunabótamat
200.150.000 kr.
Byggt 1962
Sameiginlegur
Til sölu eða leigu við Reykjavíkurveg 64 í Hafnarfirði, 600 m² skrifstofu- og lagerhúsnæði á þremur hæð. Fjöldi bílastæða er við húsið. Laust fljótlega.

Vel staðsett 600 m² atvinnuhúsnæði á þremur hæðum. Hver hæð er um 200 m² og býður eignin upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, hvort sem er fyrir skrifstofur, verslun eða lager. Möguleiki er á að leigja tvær hæðir saman í húsinu þ.e. um 400 m².

Nánari lýsing:
1 hæð: Móttaka er við inngang og vindfang. Þrjár skrifstofur, fundarherbergi með kaffistofuinnréttingu, tvö salerni, ræstiaðstaða og tvær geymslur. Fundarherbergið er með sérinngangi. Parket á gólfi og kerfisloft með innfelldri led lýsingu. Stigi liggur upp á 2. hæð og því auðvelt að nýta saman eins og gert er i dag. Einnig er möguleiki á að opna stigagang niður í lagerrými á jarðhæð bakatil við húsið.
2. hæð:  Fimm skrifstofur, tvö salerni og rúmgóð kaffiaðstaða sem einnig nýtist sem fundarrými. Innangengt er milli jarðhæðar og 2. hæðar, en einnig er hægt að aðskilja hæðirnar og nýta sérinngang af sameiginlegum stigagangi. Parket á gólfi og gluggar á þrjá vegu.
Lager á jarðhæð bakatil: Um 200 m² með aðkomu úr porti bakatil við húsið. Rýmið er nú skipt í tvö bil með léttum vegg sem auðvelt er að fjarlægja og opna upp allt rýmið. Iðnaðarhurð og inngönguhurð til staðar og möguleiki á að bæta við annari iðnaðarhurð. 
Möguleiki er á að tengja allar þrjár hæðirnar innbyrðis í gegnum stigagang sem er til staðar.
Ekki er til staðar virðisaukaskattskvöð á eigninni.

Hafðu samband við Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala og leigumiðlara í síma 824-6703, olafur@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.

 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Til leigu
Image
Opna eign
Dalshraun 3
220 Hafnarfjörður
651 m2
Skrifstofuhúsnæði
Tilboð
Jöfur fasteignasala sérhæfir sig í faglegri ráðgjöf og þjónustu við kaup, sölu, leigu og verðmat atvinnuhúsnæðis, með persónulegri aðstoð fyrir kaupendur, seljendur, leigjendur og fjármálastofnanir. Hafðu samband í síma 534-1020 til að ræða þínar þarfir.
Hafðu samband
sala@jofur.isS: 5341020
Suðurlandsbraut 4a
kt. 510507-0960
Hlekkir
© Copyright 2026 - Jöfur
Knúið af
Fasteignaleitin