Til leigu um það bil 600 m² lager- og iðnaðarhúsnæði við Völuteig ásamt góðu útisvæði. Laust frá 1. ágúst
Nánari lýsing: Húsnæðið skiptist upp í stóran lager-/iðnaðarsal með u.þ.b. 6 m. lofthæð, starfsmannaaðstöðu, skrifstofu-/ vinnurými ásamt kaffiaðstöðu og snyrtingu á millilofti. Þriggja fasa rafmagn er til staðar. Hæð á innkeyrsluhurð er um 3,5 m. Upphitun er með hitablásurum. Við hlið þessa rýmis er 326,3 m² lagersalur sem hægt er að opna á milli og verða þá heildarfermetrarnir 922,8. VSK leggst við leigufjárhæðina.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali í síma 897 7086 tölvupóstur hmk@jofur.is eða Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali í síma 824 6703 tölvupóstur olafur@jofur.is