Til sölu: 173,3 m² iðnaðarhúsnæði við Koparsléttu 14 á Kjalarnesi. Um endabil í húsinu er að ræða. Laust við kaupsamning.
Eignin er stálgrindarhús sem skiptist í tvær hæðir.
Jarðhæðin er 125,5 m² og er mest einn salur með inngöngudyrum á tvo vegu ásamt innkeyrsludyrum. Lofthæð við innkeyrsludyr er um 6,9 m. og innkeyrsludyrnar eru um 4,4 m. á hæð. Lofthæð undir millilofti er um 4,7 m. Niðurföll eru í gólfi og salernisaðstaða er á jarðhæð. 7 metrar inn að millilofti frá innkeyrsludyrum.
Milliloftið er steypt, skráð 47,8 m², og er opið rými með þakgluggum og opnanlegum glugga. Þar eru einnig tveir miðstöðvarofnar.
Brunaslönguhjól eru til staðar á báðum hæðum. Hitablásari er í sal.
Malbikað bílaplan er við húsið.
Ekki er til staðar vsk-kvöð á húsnæðinu.
Eignin er laus við kaupsamning.
Lyklar á skrifstofu Jöfurs, hafið samband til að skoða eignina.
Hafðu samband við Axel Ólafsson, löggiltan fasteignasala í síma 661-2507, axel@jofur.is eða Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala og leigumiðlara í síma 824-6703, olafur@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.