Til leigu 832,5 m² verslunarhúsnæði auk hlutdeildar í sameign í nýlegri og glæsilegri byggingu Garðheima við Álfabakka 6. Laust frá september nk.
Nánari lýsing: Húsnæðið er að mestu opið verslunarrými með mikilli lofthæð, þakgluggum, verslunarhurð og góðu aðgengi. Aðgengi er að snyrtingum og kaffistofu í sameign. Einnig er möguleiki á að leigja skrifstofuaðstöðu á 2. hæð í húsinu. Næg bílastæði eru til staðar á lóð hússins. VSK leggst við leigufjárhæðina.
Hægt væri að tengja þetta rými við annað 255 m² verslunarrými með 111,1 m² tengibyggingu og verða því heildarfermetrarnir samtals 1.198,6
Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson, löggiltur fasteignasali s. 897 7086 hmk@jofur.is