Til leigu mjög gott 118,9 m² nýlegt iðnaðarbil við Desjamýri í Mosfellsbæ. Laust strax!
Eignin er skráð skv HMS, 118,9 m² þar af er gólfflötur á jarðhæð 81,3 m² og milliloft 37,6 m².
Há innkeyrsluhurð og sérinngönguhurð er inn í rýmið. Mikil lofthæð og málað gólf. Salerni er á neðri hæð. Milliloft er parketlagt með eldhúsinnréttingu. Lóðin er malbikuð og afgirt með aðgangsstýrðu rafmagnshliði. Sérafnotasvæði fyrir framan innkeyrsluhurðina er um 40 m² og við lóðamörk er 112 m² sérafnotasvæði.
Allar frekari upplýsingar um húsnæðið veitir Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali í síma 897 7086 hmk@jofur.isHúsið er var byggt árið 2023. Lofthæðin er ca. 8 m upp í mæni og ca 4,8 m í milliloft. Grunnflötur er steyptur með vélslípaðri botnplötu og máluðu gólfi. Burðarvirki húss, þaks og veggja er úr límtré, álklætt með PIR samlokueiningum. Milliveggir eru steinullar-samlokueiningar. Hvít stálklæðning er í innra rými. Plan er malbikað og fylgir merkt um 40 m² svæði fyrir framan bilið og 112 m² afnotaréttur á lóð fyrir framan, fjær að lóðarmörkum. Girðing er á lóðarmörkum og rafmagnshlið við innkeyrslu.