Jöfur logo
Skráð 16. sept. 2026

Grensásvegur 1

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
1,825 m2
Verð
Tilboð
Lyfta
Sameiginlegur
Til leigu samtals um 1.825 m² nýtt og glæsilegt skrifstofuhúsnæði á fjórum hæðum (hver hæð um 420 m² brúttó) auk geymslurýmis og annarra stoðrýma í kjallara í nýbyggðu og glæsilegu húsi við Grensásveg 1 gegnt Álfheimum/ Glæsibæ. Húsnæðið er tilbúið til afhendingar í október 2026.

Nánari lýsing: Á hverri hæð frá 2. - 5. hæð eru opin vinnurými, lokuð skrifstofuherbergi, fundarherbergi, 2ja manna fundarherbergi og minni næðisrými, stórar kaffistofur/ eldhús með borðsölum, snyrtingum og öðrum rýmum. Við hönnun á húsnæðinu var lögð mikil áhersla á að skapa góða hljóðvist, loftgæði og vandað efnisval á innréttingum, gólfefnum, loftaefni og lýsingu.
Aðgengi er að 183 bílastæðum í samnýttri bílageymslu á þremur hæðum neðanjarðar og veður fyrirkomulagið með þau leigustæði til langtíma og einnig skammtímabílastæði sem eru í boði innan dagsins fyrir viðskiptavini og gesti. Áhersla er lögð á skilvirkni og einfaldleika varðandi fyrirkomulag með greiðslur fyrir bílastæðin. Tvær lyftur sem eru hlið við hlið þjóna skrifstofuturninum eingöngu. Hægt er að leigja út húsnæðið í minni einingum, þ.e. 2.-3. hæðir saman eða staka hæð.
Stór hjólageymsla er á efstu hæð kjallara hússins fyrir skrifstofu- og önnur atvinnurými og íbúðir sem eru einnig í húsinu. Til staðar eru rafhleðslustöðvar í bílageymslu ásamt aðgengi leigjenda  atvinnuhúsnæðis upp á aðgang að deilibílum til þess að fá sem besta samnýtingu á bílastæðum/ verðmætum hússins. Þessi glæsilega skrifstofubygging er vel staðsett í beinu framhaldi af öðrum byggingum við Suðurlandsbrautina og setur nú þegar sterkan svip á götumyndina.

VSK leggst við leigufjárhæðina.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson, löggiltur fasteignasali í síma 897 7086 tölvupóstur hmk@jofur.is eða Ólafur Jóhannsson, löggiltur fasteignasali í síma 824 6703 tölvupóstur olafur@jofur.is

Sambærilegar eignir

Opna eign
Til leigu
Image
Opna eign
Katrínartún 2
105 Reykjavík
1,882 m2
Skrifstofuhúsnæði
Tilboð
Jöfur fasteignasala sérhæfir sig í faglegri ráðgjöf og þjónustu við kaup, sölu, leigu og verðmat atvinnuhúsnæðis, með persónulegri aðstoð fyrir kaupendur, seljendur, leigjendur og fjármálastofnanir. Hafðu samband í síma 534-1020 til að ræða þínar þarfir.
Hafðu samband
sala@jofur.isS: 5341020
Suðurlandsbraut 4a
kt. 510507-0960
Hlekkir
© Copyright 2026 - Jöfur
Knúið af
Fasteignaleitin