Til leigu glæsileg skrifstofuhhæð á 4. hæð í Sjávarborg, 105 Reykjavík, heil hæð alls um 1.230 m² með sameign. Einstakt útsýni. Laust strax.
Staðsetning er frábær, rétt við Borgartún og stutt frá miðbænum.
Húsnæðið er opið og bjart. Opin vinnurými með góðri hljóðvist. Sjö lokuð skrifstofuherbergi og þrjú fundarherbergi. Eldhúsaðstaða er í opnu rými við hliðina á stóru fundaherbergi sem mögulegt er að opna inn í eldhúsið.
Einstakt útsýni er af hæðinni. Hæðinni fylgir útiverönd til einkaafnota.
8 snyrtingar eru á hæðinni, þar af tvær fyrir fatlaða.
Möguleiki er á að aðgangsstýra lyftum fyrir hverja hæð í húsinu. Tvær lyftur eru í húsinu.
Inngangur í kjallara er bjartur og stór og virkar eins og aðalinngangur.
Í kjallara hússins eru hjólreiðageymslur og búningsaðstaða með sturtum. Úr bílageymslu í kjallara ganga svo tvær lyftur. Mikið er af bílastæðum í kjallara sem er samfelldur undir öllu hverfinu. Hinu leigða fylgir rúmgóð sér geymsla í kjallara.
Leigjendum í húsinu bjóðast dagpassar eða sólahringspassar að bílastæðum í kjallara á sanngjörnu verði.
Hafðu samband við Magnús Kristinsson, löggiltan fasteignasala og leigumiðlara í síma 861-0511, magnus@jofur.is eða Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala og leigumiðlara í síma 824-6703, olafur@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.