Til leigu nýtt 82,8 m² atvinnuhúsnæði á 2. hæð við Breiðhellu 3 í Hafnarfirði. Um er að ræða tvær ósamþykktar íbúðaeiningar á 2. hæð. Leigjast saman eða sitt í hvoru lagi. Laust strax.
Nánari lýsing:
Á 2. hæð er búið að innrétta tvær íbúðaeiningar 38,9 m² og 43,9 m². Báðar eru með opið rými með eldhúsinnréttingu, afstúkaðri svefnaðstöðu og salerni með sturtu.
Á gangi er sameiginleg þvottaaðstaða með þvottavél og þurrkara.
Malbikað bílaplan er við húsið.
Húsaleiga ber ekki vsk.
Hafðu samband við Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala í síma 824-6703, olafur@jofur.is eða Axel Ólafsson, löggiltan fasteignasala í síma 661-2507, axel@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.