Til leigu, 220 m² gott skrifstofuhúsnæði á 2. hæð á góðum stað við Hlíðasmára í Kópavogi. Laust frá 1. apríl 2027 eða fyrr.
Nánari lýsing: Skrifstofuhúsnæði á 2.hæð sem skiptist í móttöku, 7 lokaðar skrifstofur, skjalageymslu, salerni með sturtuaðstöðu og kaffistofu. Leigusali hefur möguleika á að endurinnrétta húsnæðið eða aðlaga það að þörfum leigjanda. Við leiguverðið bætist virðisaukaskattur.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson, löggiltur fasteignasali í síma 897 7086 hmk@jofur.is um eignina eða aðrar eignir.