Til leigu um 1.100 m² atvinnuhúsnæði á 2. hæð á Granda, laust nú þegar.
Hæðin skiptist í fjórar einingar einingar í dag, 584 m², 430 m² og tvær 42 m² sem hægt er að leigja saman eða hverja fyrir sig. Rýmið þarfnast endurbóta og býður því upp á mikla möguleika. Leigusali mun innrétta húsnæðið í samráði við nýjan leigjanda og eftir hans þörfum. Stutt er í hafnarsvæðið, miðbæinn, veitingastaði og þjónustu á Granda.
Fjöldi bílastæða er við húsið. VSK leggst við leigufjárhæðina.
Hafðu samband við Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala í síma 824-6703, olafur@jofur.is eða Axel Ólafsson, löggiltan fasteignasala í síma 661-2507, axel@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.