Til sölu Álftamýri 9, 108 Reykjavík. Húsið er staðsett í verslunarhverfi í Reykjavík og er góð aðkoma að húsinu. Það er tvær hæðir og kjallari, steinsteypt og 2. hæð klædd að utan.
Lóðin sem er sameiginleg með Álftamýri 7, er 1.528 m² að stærð og er malbikuð. Hleðslustöðvar eru við bílastæði á baklóð. Lóðin er að mestu frágengin. Fyrir liggur heimild til að hækka húsið um eina hæða.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 863-5868, bergsveinn@jofur.isNánari lýsing: Komið er inn í stigagang sem er flísalagður og snyrtilegur. Aðgengi er inn á hæðir úr stigagangi.
Í kjallara, sem er um 151,2 m², er bókasafn, geymslur og inntaksrými. Gólf eru með kork flísum og loft eru með innfelldri lýsingu. Úr kjallara er útgengt út í ramp sem liggur að bílastæðum á baklóð.
Á jarðhæð, sem er um 151,2 m², er kennslusalur, fundarherbergi og salerni sem innréttað sem kennslusalur, og stjórnarherbergi. Fyrir framan kennslusal er setustofa, fatahengi og tvö salerni. Á gólfum eru flísar og parket. Kerfisloft með innfelldri lýsingu er í hluta hæðarinnar, en stjórnar herbergi er með sléttu lofti með innfelldri lýsingu að hluta.
Á annarri hæð, sem er um 162,6 m², er móttaka, skrifstofur, eldhús/kaffistofa, fatahengi og salerni. Parket er á gólfum, kerfisloft með innfelldri lýsingu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Jöfur fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þyki
---------------------------
Kaupandi greiðir stimpilgjald af kaupsamningi, sem er 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila af fasteignamati eða samkvæmt annarri upphæð sem sýslumaður ákveður hverju sinni. Greiði kaupandi hluta kaupverðs með láni, þá greiðir hann lánveitanda lántökugjald og skjalagerðarkostnað. Kaupandi greiðir allan kostnað við yfirtöku áhvílandi lána. Kaupandi greiðir þinglýsingu kaupsamnings, afsals og veðskjala og er kostnaður við það kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Kaupandi greiðir umsýslugjald til Jöfurs ehf. að fjárhæð kr. 82.460,-