Jöfur logo
Skráð 8. maí 2025
Deila eign
Deila

Grensásvegur 1

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
420 m2
Verð
Tilboð
Sameiginlegur
Til leigu um 420 m² ný skrifstofuhæð auk lagerrýmis og annarra stoðrýma í kjallara í nýbyggðu og glæsilegu húsnæði við Grensásveg 1 gegnt Álfheimum/ Glæsibæ. Áætlað er að húsnæðið verði tilbúið til afhendingar síðar á þessu ári 2025 eða fljótlega 2026.

Nánari lýsing: Á hverri hæð frá 2. - 6. hæð verður gert ráð fyrir opnum vinnurýmum, lokuðum skrifstofuherbergjum og fundarherbergjum, kaffistofum/ eldhúsum með borðsal, snyrtingum og öðrum rýmum að ósk væntanlegs leigjanda. Við hönnun á húsnæðinu var lögð mikil áhersla á að skapa góða hljóðvist, loftgæði og vandað efnisval á væntanlegum innréttingu, gólfefnum, loftaefni og lýsingu.
Aðgengi verður að 183 bílastæðum í samnýttri bílageymslu á þremur hæðum neðanjarðar og veður fyrirkomulagið með þau leigustæði til langtíma og einnig verða skammtímabílastæði í boði innan dagsins fyrir viðskiptavini og gesti. Áhersla verður lögð á skilvirkni og einfaldleika varðandi fyrirkomulag með greiðslur fyrir bílastæðin. Tvær lyftur sem eru hlið við hlið munu þjóna skrifstofuturninum eingöngu.
Stór hjólageymsla verður á efstu hæð kjallara hússins fyrir skrifstofu- og önnur atvinnurými og íbúðir sem eru í húsinu. Áætlun er um að setja upp rafhleðslustöðvar í bílageymslu ásamt því að bjóða leigjendum atvinnuhúsnæðis upp á aðgang að deilibílum til þess að fá sem besta samnýtingu á bílastæðum/ verðmætum hússins. Þessi glæsilega skrifstofubygging er vel staðsett í beinu framhaldi af öðrum byggingum við Suðurlandsbrautina og setur nú þegar sterkan svip á götumyndina.

VSK leggst við leigufjárhæðina.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson, löggiltur fasteignasali í síma 897 7086 tölvupóstur hmk@jofur.is eða Ólafur Jóhannsson, löggiltur fasteignasali í síma 824 6703 tölvupóstur olafur@jofur.is

Sambærilegar eignir

Opna eign
Til leigu
Image
Opna eign
Grensásvegur 1C
108 Reykjavík
391.9 m2
Verslunarhúsnæði
Tilboð
Opna eign
Til leigu
Image
Opna eign
Suðurlandsbraut 4
108 Reykjavík
400 m2
Verslunarhúsnæði
Tilboð
Opna eign
Til leigu
Image
Opna eign
Ármúli 44
108 Reykjavík
400 m2
Verslunarhúsnæði
Tilboð
Opna eign
Til leigu
Image
Opna eign
Suðurlandsbraut 28
108 Reykjavík
476 m2
Skrifstofuhúsnæði
3
Tilboð
Jöfur fasteignasala sérhæfir sig í faglegri ráðgjöf og þjónustu við kaup, sölu, leigu og verðmat atvinnuhúsnæðis, með persónulegri aðstoð fyrir kaupendur, seljendur, leigjendur og fjármálastofnanir. Hafðu samband í síma 534-1020 til að ræða þínar þarfir.
Hafðu samband
sala@jofur.isS: 5341020
Suðurlandsbraut 4a
kt. 510507-0960
Hlekkir
© Copyright 2025 - Jöfur
Knúið af
Fasteignaleitin