Til leigu um 449,5 m² skrifstofu-/ þjónustu- og/ eða verslunarhúsnæði á 1. hæð við Hraunbæ. Laust strax!
Nánari lýsing: Húsnæðið skiptist upp í eitt stórt opið rými, nokkrar lokaðar skrifstofur að hluta til með glerveggjum, eitt fundarherbergi, rúmgott eldhús og snyrtingar. Góð aðkoma og næg bílastæði á lóð hússins. Á gólfum eru teppi, dúkur og flísar. 13,3 m² sérgeymsla er í kjallara sem tilheyrir rýminu. VSK leggst ekki við leigufjárhæðina.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson, löggiltur fasteignasali s. 897 7086 hmk@jofur.is