Til leigu 64,1 m² nýtt verslunar- og þjónustuhúsnæði á jarðhæð við Smyrilshlíð 15 í Reykjavík. Laust strax.
Góð lofthæð er í húsnæðinu og há inngöngudyr. Stórir verslunargluggar snúa fram á götu.
Húsnæðið gæti hentað sem verslunarhúsnæði, skrifstofur og fyrir ýmsa aðra starfsemi.
Leigusali mun innrétta húsnæðið fyrir væntanlegan leigjanda.
Við leigufjárhæð bætist virðisaukaskattur og rekstrarkostnaður.
Hafðu samband við Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala í síma 824-6703, olafur@jofur.is eða Helga Má Karlsson, löggiltan fasteignasala í síma 897-7086, helgi@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.