Til leigu um 7.649 m² glæsileg nýbygging á 6. hæðum auk jarðhæðar baka til við Urðarhvarf 10 í Kópavogi.
Urðarhvarf 10 er nýtt skrifstofu- og atvinnuhúsnæði sem tilbúið verður í ársbyrjun 2028, staðsett í Kópavogi n.t.t. í hlíð ofan nýrrar vegtengingar Arnarnesbrautar við Breiðholtsbraut.
Á 2. til 5. hæð byggingar eru 715 m² skrifstofuhæðir ásamt 485 m² skrifstofu á 6. hæð sem verður inndregin með þaksvölum sem ná umhverfis alla hæðina. Hæðirnar verða hannaðar með nútímalegu vinnuumhverfi í huga og gert er ráð fyrir blöndu af opnu vinnurými, lokuðum skrifstofum og fundarherbergjum, ásamt rúmgóðri kaffistofu. Hæðirnar verða bjartar með stórum gluggum á öllum hliðum og aðgengi að svölum af hverri hæð. Gott aðgengi er að öllum hæðum með tveimur lyftum og stigahúsi. Gert er ráð fyrir fjórum salernum á hverri hæð, þar af eitt með aðgengi fyrir hjólastóla.
Aðkomuhæðin er hugsuð sem 675 m² verslunar- eða þjónustuhæð en þar væri jafnframt hægt að vera með skrifstofur eða mötuneyti fyrir húsið.
Á jarðhæð baka til við húsið er 910 m² lager ásamt tvöföldum bílakjallara. Lofthæð lagerrýmisins er rúmlega tvöföld n.t.t. 7,5m sem skapar mikla möguleika fyrir tilvonandi leigutaka t.d. fyrir háar hillusamstæður, hirslur og annað slíkt. Þar verður jafnframt flott aðstaða fyrir starfsmenn hússins, þar á meðal hjólageymsla, hobbýherbergi með golfhermi, líkamsrækt o.fl.
58 bílastæði eru við aðkomuhæð, 8 samsíða stæði með fram austurhlið byggingarinnar og 38 norðan megin við hús þ.e. fyrir framan lager. Að auki eru 46 bílastæði í kjallara, aðgengilegur frá austurhlið byggingarinnar.
Lóðin nýtur gífurlegs útsýnis til norðurs í átt að Esjunni, yfir Elliðarárdalinn og í átt að Búrfelli.
Væntanlegur leigjandi getur komið að hönnun hæðanna.
Áætlað er að húsið verði tilbúið til afhendingar í ársbyrjun 2028.
Hafðu samband við Axel Ólafsson, löggiltan fasteignasala í síma 661-2507, axel@jofur.is eða Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala og leigumiðlara í síma 824-6703, olafur@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.