Til sölu eða leigu 386 m² heil skrifstofuhæð á 2. hæð við Tryggvagötu 11 í miðbæ Reykjavíkur. Laus við kaupsamning.
Glæsilegt skrifstofurými sem skiptist í móttöku, opin vinnurými, tvö fundarherbergi og 13 lokaðar skrifstofur.
Við inngang er opið rými sem getur nýst sem móttaka eða setustofa. Eldhús, tvær snyrtingar og ræstikompa.
Stórt fundaherbergi er staðsett í miðju húsnæðisins. Tölvulagnir eru í stokkum.
Lyfta er í húsinu.
Reykjavíkurborg er með forkaupsrétt að eigninni skv. lóðarleigusamningi.
Nánari upplýsingar veitir Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali, 863-5868, bergsveinn@jofur.is