Til sölu gott 642 m² iðnaðar og lager hús í Skútahruani 11, 220 Hafnarfjörður. Húnæðið er með mikilli lofthæð.
Á jarðhæð, sem er 495,97 m², er opið rými með tveimur háum innkeyrsluhurðum, móttöku og starfsmannaaðstöðu. Í starfsmannaaðstöðu eru búningsklefar og kaffistofa.
Milliloft sem er um 146 m². Ekki er stigi upp á milliloftið.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í sím a863-5868, bergsveinn@jofur.is Lóð fyrir framan húsið er malbikuð og gott aðgengi er að framhlutanum. Bakhluti lóðar, sem er um 500 m², er afgirtur en ómalbikaður
Seljandi upplýsir að búið sé að yfirfara frárennslislagnir og rafmagnstafla hefur verið endurnýjuð.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Jöfur ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Kaupandi greiðir stimpilgjald af kaupsamningi, sem er 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur en 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili. Greiði kaupandi hluta kaupverðs með láni, þá greiðir hann lánveitanda lántökugjald og skjalagerðarkostnað. Kaupandi greiðir þinglýsingu kaupsamnings, afsals og veðskjala. Kaupandi greiðir umsýslugjald til Jöfurs ehf. að fjárhæð kr. 82.460.-.