Til sölu 420,40 m² verslunar-og lager/iðnaðarhúsnæði við Fuglavík 18, Reykjanesbæ. Húsið er fullfrágengið að utan og lóð malbikuð. Inngangur á framhlið er um tvöfalda rafdrifna hurð í verslun/móttöku, ein lokuð skrifstofa og salerni. Lager er með góðri lofthæð eða frá 4,2 m - 6,2 m. Búið er að setja upp milli loft sem er um 50 m², góður stigi er við milliloftið. Lager er óskiptur og eru gólf og veggir nýmálaðir. Einstaklega snyrtileg eign. Kaupandi yfirtekur virðisaukaskattskvöð.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Bergsvein Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 863-5868, bergsveinn@jofur.is