Til leigu gistiheimilið Langahlíð við Galtalækjarskóg. Gistiheimilið er mjög vel staðsett rétt sunnan við Landveginn og aðeins um 120 km frá Reykjavík. Gistiheimilið er með 11 herbergjum með svefnplássi fyrir þrjá auk eins tveggja manna herbergis með hjónarúmi og baði. Annars eru WC og sturtur í sameiginlegum rýmum, bæði á gangi og í anddyri. Húsið er skráð fyrir alls 30 manns en mjög vel fer um 24 manneskjur, þ.e. 12 pör eða hjón. Öll rúm eru með vönduðum þýskum hlífðarlökum. Sængur og rúmföt fylgja ekki.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 863-5868, bergsveinn@jofur.is Húsið skiptist í stórt anddyri, setustofu, eldhús og borðsal, svefnherbergisgang og 11 svefnherbergi. Í húsinu er einnig þvottahús með þvottavél.
Húsið er vel búið nýjum tækjum og borðbúnaði og er í fallegu umhverfi við landsfrægan, ævintýralegan landnámsskóg með ótal gönguleiðum og miklu skjóli. Húsið er staðsett aðeins 10 km frá afleggjaranum inn í Landmannalaugar og þar með inn á einn fallegasta hluta hálendis íslands.
Í húsinu er þráðlaust netsamband og sjónvarp. Þess skal einnig getið að í húsinu er nýtt og fullkomið brunavarnakerfi sem tengt er stjórnstöð.
Húsið var tekið í gegn í sumar, skipt um nánast allt gler og gluggalista, öll pípulögnin var endurnýjuð, húsið málað að utan og allir gluggar að inna málaðir og þar að auki var byggður 140 fermetra sólpallur við alla suðurhlið húsins.
Með húsinu fylgir að einhverju leyti aðgangur að Galtalækjarskógi, en þar er um að ræða algjöra paradís til gönguferða, hjólreiða og gönguskíða iðkunar á veturna.