Til leigu: um 150 m² skrifstofu eða þjónustuhúsnæði á 3. hæð við Álfabakka 14 í Mjóddinni. Losnar í ágúst.
Um er að ræða helming hæðarinnar í vel staðsettu skrifstofuhúsnæði sem skiptist í fimm lokaðar skrifstofur, rúmgott fundarherbergi og anddyri með móttöku. Tvö salerni og kaffistofa innan rýmis.
Fyrirhugað er að breyta innra skipulagi rýmisins, meðal annars til að aðskilja það frá öðrum leigutaka á hæðinni. Auðvelt er að breyta veggjaskipan til að opna rýmið upp.
Möguleiki er á innrétta húsnæðið í samræmi við óskir nýs leigutaka. Rýmið hentar einkar vel fyrir meðferðaraðila eða aðra þjónustustarfsemi.
Lyfta í húsinu. Ekki VSK húsnæði.
Hafðu samband við Axel Ólafsson í síma 661-2507, axel@jofur.is eða Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala og leigumiðlara í síma 824-6703, olafur@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.