Til leigu 420 m² skrifstofuhæð við Rauðarárstíg 10 í Reykjavík. Afhending samkomulag.
Hæðin, sem er eitt opið rými í dag, verður innréttuð á vandaðan hátt að óska leigjanda. Meðfylgjandi teikning sýnir mögulega skiptingu á hæðinni, en önnur útfærsla kemur til greina.
Gluggar eru á tvo vegu og er rýmið rúmgott og bjart með miklum möguleikum og hentar vel fyrir fjölbreytta starfsemi.
Stórt bílaplan er baka til við húsið. Einnig eru nokkur stæði í bílakjallara.
Lyfta er í húsinu.
Hafðu samband við Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala í síma 824-6703, olafur@jofur.is eða Magnús Kristinsson, löggiltan fasteignasala í síma 861-0511, magnus@jofur.is til að fá nánari upplýsingar.