Til leigu nýtt 168 m² atvinnuhúsnæði á tveimur hæðum við Breiðhellu 3 í Hafnarfirði. Á jarðhæð er lagerhúsnæði með innkeyrsludyrum en á efri hæð eru tvær ósamþykktar íbúðaeiningar. Laust strax.
Nánari lýsing: Húsnæðið skiptist í um 78 m² lagerhúsnæði á jarðhæð og um 90 m² á 2. hæð. Jarðhæðin er einn salur með um 3,6 m. lofthæð. Innkeyrsludyr eru 3,2 m. á hæð. Bakinngangur er til staðar og hægt að keyra bíla að þeim dyrum. Niðurfall er í gólfi. Ekki er til staðar salernisaðstaða og möguleiki er á að koma henni upp. Á 2. hæð er búið að innrétta tvær íbúðaeiningar. Báðar eru með opið rými með eldhúsinnréttingu, afstúkaðri svefnaðstöðu og salerni með sturtu. Á gangi er sameiginleg þvottaaðstaða með þvottavél og þurrkara. Malbikað bílaplan er við húsið. Húsaleiga ber ekki vsk. Húsnæðið hentar ekki sem bílaverkstæði / No car repair no car wash.
Hafðu samband við Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala í síma 824-6703, olafur@jofur.is eða Axel Ólafsson, löggiltan fasteignasala í síma 661-2507, axel@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.
Sameiginlegur

Jöfur fasteignasala sérhæfir sig í faglegri ráðgjöf og þjónustu við kaup, sölu, leigu og verðmat atvinnuhúsnæðis, með persónulegri aðstoð fyrir kaupendur, seljendur, leigjendur og fjármálastofnanir. Hafðu samband í síma 534-1020 til að ræða þínar þarfir.