Til leigu húsnæði innréttað sem sjúkraþjálfun, Skeifunni 19, 108 Reykjavík.
Laust strax.
Tilskilin leyfi til reksturs sjúkraþjálfunar eru til staðar og möguleiki á samstarfi við eiganda um rekstur sjúkraþjálfunar.
Skiptist upp í 5 lokuð meðferðarherbergi/skrifstofur, tækjasal, stærri leikfimisal, eldhús og snyrtingu með sturtu.
Stærð húsnæðisins er um 226 m² að meðtalinni hlutdeild í sameign.
Lyfta er í húsinu og gott aðgengi fyrir fatlaða.
VSK leggst ekki við leiguverð.
Leiguverð er 1.250.000 kr./mán.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali, 861 0511, magnus@jofur.is