Til leigu samtals 646,5 m² lager-, iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði á góðum stað við Hamarshöfða með afgirtu og aðgansstýrðu útisvæði. Laust frá september 2025
Húsnæðið skiptist upp í 2 aðskilda iðnaðarsali, annar er um 120 m² og hinn er um 240 m² starfsmannaaðstaða/ eldhús í útbyggðri skrifstofuaðstöðu með sérinngöngum. Snyrtingar eru í sitthvorum enda hússins. Í vesturenda hússins er um 58 m² skrifstofuaðstaða á milli lofti. Þar undir er geymslu-/ lagerrými. Lofthæð er um 5,5 m. þar sem hún er mest í lagersölunum. Hæð á innkeyrsluhurðum er um 3,5 m. Niðurföll eru í gólfum. Útisvæðið er um 460 m² og er það afgirt og aðgangsstýrt með rafdrifnu hliði. Hægt er að leigja húsið út í tvennu lagi, þ.e. um 408 m² hluta og 238,5 m² hluta. VSK leggst ekki við leigufjárhæðina.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson, löggiltur fasteignasali í síma 897 7086 tölvupóstur hmk@jofur.is eða Ólafur Jóhannsson, löggiltur fasteignasali í síma 824 6703 tölvupóstur olafur@jofur.is