Til leigu 390 m² nýtt verslunarhúsnæði að meðtalinni sameign við Snorrabraut. Laust strax.
Sérnotaýmið sem er 354,3 m² verður að mestu leyti opið verslunarrými með um rúmlega 4 m. lofthæð, kaffistofu, starfsmannaaðstöðu og wc. Vöruaðkoma með hurð er baka til.
Sameign er 35,7 m²
Skilalýsing: Rýmið afhendist tilbúið til innréttinga, loft og veggir grunnmáluð, gólf tilbúið til flotunar, rafmagnstafla komin upp og vinnulýsing. Allir neysluvatnsstútar tilbúnir til tengingar.
Gluggar og hurðir eru úr vönduðu álkerfi. Allt ytra byrði, lóð og önnur sameign fullfrágengin.
VSK leggst við leigufjárhæðina.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali, í síma 897 7086 tölvupóstur hmk@jofur.is eða Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali, í síma 824 6703 tölvupóstur olafur@jofur.is