Jöfur logo
Skráð 23. mars 2026

Selhella 11

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
1,783.7 m2
Verð
795.000.000 kr.
Fermetraverð
445.703 kr./m2
Fasteignamat
462.500.000 kr.
Brunabótamat
677.750.000 kr.
Jöfur ehf.
Mynd af Magnús Kristinsson
Magnús Kristinsson
löggiltur fasteignasali
Byggt 2012
Sameiginlegur
Til sölu heil húseign á frábærum stað, iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði að Selhellu 11, 221 Hafnarfirði, alls 1.783,7 m².

Stærstur hluti hússins er lager- og iðnaðarsalur, um 1.200 m². Mikil lofthæð er í sal eða um 7 metrar. Gámahleðsludyr eru tvær í suður og innkeyrsludyr 4,3 m. á hæð eru í norður. 
Inn af salnum er lyftarageymsla og kaffistofa. Gólf eru steypt og rykbundin. Öll gerð húsnæðisins og aðkoma býður upp á gott vöruflæði inn sunnanmegin um gámahleðsludyr og út norðanmegin fyrir sendiferðabíla og afgreiðslu. Vatnsúðakerfi (sprinkler) er í lagerhluta hússins. Upphitun í sal er með gólfhitakerfi.

Skrifstofuhluti hússins er glæsilega hannaður og er á tveimur hæðum. Á jarðhæð eru um 235 m² andyri og skrifstofurými og á 2. hæð eru um 338 fm. skrifstofurými sem er að mestu opin vinnurými. Fundaherbergi og næðisrými eru innan um opin vinnurými. Gólfefni eru blanda af teppaflísum, parketi og flísum. Lagnastokkar eru með veggjum og vönduð lýsing í lofti. Miðstöðvarofnar eru á skrifstofum.

Um 59 bílastæði eru merkt á lóðinni skv. teikningu.
Um er að ræða leigulóð í eigu Hafnarfjarðar.

Nánari upplýsingar veita Magnús Kristinsson, löggiltur fasteignasali, 861-0511, magnus@jofur.is og Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali, 824-6703, olafur@jofur.is

----------------------------------

Kaupandi greiðir stimpilgjald af kaupsamningi, sem er 1,6% fyrir lögaðila af fasteignamati eða samkvæmt annarri upphæð sem sýslumaður ákveður hverju sinni. Greiði kaupandi hluta kaupverðs með láni, þá greiðir hann lánveitanda lántökugjald og skjalagerðarkostnað. Kaupandi greiðir allan kostnað við yfirtöku áhvílandi lána. Kaupandi greiðir þinglýsingu kaupsamnings, afsals og veðskjala og er kostnaður við það kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Kaupandi greiðir umsýslugjald til Jöfurs ehf. að fjárhæð kr. 82.460 ,- 
Jöfur fasteignasala sérhæfir sig í faglegri ráðgjöf og þjónustu við kaup, sölu, leigu og verðmat atvinnuhúsnæðis, með persónulegri aðstoð fyrir kaupendur, seljendur, leigjendur og fjármálastofnanir. Hafðu samband í síma 534-1020 til að ræða þínar þarfir.
Hafðu samband
sala@jofur.isS: 5341020
Suðurlandsbraut 4a
kt. 510507-0960
Hlekkir
© Copyright 2026 - Jöfur
Knúið af
Fasteignaleitin