Til leigu um 171,9 m² parhús í Björtusölum 7, 201 Kópavogur.
Um er að ræða huggulegt 171,9 m² parhús með bílskúr. Húsið er vel skipulagt og hentar vel fjölskyldu sem vill rúmgott og fallegt heimili í friðsælu umhverfi.
Í húsinu eru þrjú svefnherbergi, eldhús, stofa, baðherbergi, snyrting og þvottahús.
Á efri hæð er stofa, eldhús og er gengið út á svalir úr eldhúsi. Á millihæð er bílskúr með geymslulofti, inngangur, herbergi og snyrting með sturtu.
Á jarðhæð eru tvö herbergi, baðherbergi og þvottahús. Gengið er út á verönd með heitum potti.
Húsið er staðsett nærri leikskóla, skóla, sundlaug og íþróttahúsi. Allt í göngufæri.
Ískápur, þvottavél og þurkari getur fylgt með. Hægt er að semja um að hafa hluta af húsgögnum.
Leigjandi greiðir fyrir rafmagn og hita.
Leigjandi skal leggja fram tryggingu sem nemur 3 mánaða leigu.
Leigutími 1 ár frá og með 1. september 2026
Nánari upplýsingar veitir Bergsveinn Ólafsson, netfang bergsveinn@jofur.is.
Það sem þarf að koma fram er:
-nöfn og kennitölur íbúa
-atvinna
-nöfn á meðmælendum
-hvernig tryggingu leigjandi muni leggja fram