Jöfur logo
Skráð 23. nóv. 2026

Helguvíkurvegur 1

Atvinnuhúsn.Suðurnes/Garður-251
13,000 m2
Verð
Tilboð
Jöfur ehf.
Mynd af Ólafur Jóhannsson
Ólafur Jóhannsson
Löggiltur fasteignasali
Sameiginlegur
Til leigu fjölbreytt iðnaðar- og atvinnuhúsnæði við Helguvíkurveg 1 í Suðurnesjabæ, rétt við Helguvíkurhöfn. Afhending samkomulag.

Húsnæðið er samtals um 35.000 m² og í boði eru rými af ýmsum stærðum, allt frá 100 m² upp í 13.000 m². Nýta má húsnæðið með eftirfarandi hætti:
Lítil sérhæfð rými frá 100–750 m², t.d. fyrir ræktun eða sérhæfða framleiðslu.
Meðalstór iðnaðarrými á bilinu 1.200–3.000 m², hentug fyrir léttan iðnað, geymslu, vinnslu eða framleiðslu 
Stór iðnaðar- og framleiðslurými frá 3.000 til 13.000 m², fyrir umfangsmeiri starfsemi eða sem geymslurými til skemmri tíma.

Um er að ræða stórt iðnaðarhúsnæði með allt að 17 metra lofthæð og möguleika á að skipta rýmum niður og aðlaga þau að þörfum hvers leigjanda.

Húsnæðið hentar vel fjölbreyttum rekstri má þar nefna, iðnaðarframleiðslu, vörugeymslu og dreifingu, matvælaræktun og -vinnslu, gagnaverum og hátæknistarfsemi, léttum iðnaði, rannsóknum og skrifstofurekstri. Mikill sveigjanleiki er í útfærslu og afhendingarástandi húsnæðisins, allt frá óeinangruðum iðnaðarrýmum yfir í fullbúið húsnæði.
Stórt útisvæði fylgir svæðinu og möguleiki er á bæði skammtíma- og langtímaleigu.

Hafðu samband við Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala í síma 824-6703, olafur@jofur.is eða Magnús Kristinsson,  löggiltan fasteignasala í síma 861-0511, magnus@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.
Jöfur fasteignasala sérhæfir sig í faglegri ráðgjöf og þjónustu við kaup, sölu, leigu og verðmat atvinnuhúsnæðis, með persónulegri aðstoð fyrir kaupendur, seljendur, leigjendur og fjármálastofnanir. Hafðu samband í síma 534-1020 til að ræða þínar þarfir.
Hafðu samband
sala@jofur.isS: 5341020
Suðurlandsbraut 4a
kt. 510507-0960
Hlekkir
© Copyright 2026 - Jöfur
Knúið af
Fasteignaleitin