Til leigu 159,3 m² skrifstofuhúsnæði á 2. hæð við Grensásveg 3 í Reykjavík. Laust strax.
Rýmið skiptist í opið vinnurými, þrjár lokaðar skrifstofur, fundarherbergi og kaffistofu.
Sveigjanlegt skipulag er á hæðinni og auðvelt að sameina skrifstofueiningarnar eða breyta innra fyrirkomulagi þar sem burður hússins er í súlum. Í sameign á hæð eru snyrtingar.
Dúkur er á gólfi og kerfisloft með innbyggðri lýsingu. Öflugt loftræsikerfi til staðar.
Fyrirhugað er að setja upp lyftu í húsinu fljótlega.
Hafðu samband við Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala í síma 824-6703, olafur@jofur.is eða Magnús Kristinsson, löggiltan fasteignasala í síma 861-0511, magnus@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.