Jöfur logo
Skráð 5. júní 2025

Rauðhella 13

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
998.9 m2
2 Herb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
262.850.000 kr.
Brunabótamat
350.050.000 kr.
Byggt 2014
Sameiginlegur
Til sölu lager- og iðnaðarhúsnæði að Rauðhellu 13, 221 Hafnarfjörður, alls 998,9 fm.

Heildareignin Rauðhella 13. Húsið er tvískipt, skemma sem er stálgrindarhús, notað sem lager og steypt útbygging sem gæti nýst sem skrifstofur og söluskrifstofa. Mjög stórt útisvæði ómalbikað, í kringum húsið. Húsið er staðsett í iðnaðarhverfi skammt frá stofnæðum. 

Lager hlutinn er 870,2 fm. að stærð, grunnflötur hans er 763,3 fm. og steypt milligólf er 106,9 fm. Upphitun er með hitablásurum í sal. Lofthæð er um 5,3 metrar við vegg og 6,5 metrar við mæni. Gólf eru steypt og rykbundin. Innkeyrsluhurðir eru þrjár og stærð þeirra er um 5x5 metrar.
Skrifstofuhlutinn er 128,7 fm. að stærð, að mestu opið afgreiðslu/miðrými, eina lokaða skrifstofu, kaffistofu, búningsherbergi og snyrtingar. Steinteppi eru á gólfi.

Lóðin er skráð 4.705,8 fm. að stærð og skv. gildandi deiliskipulagi má byggja meira á lóðinni eða allt að 1.354 fm. 

Nánari upplýsingar veitir Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali, í síma 861 0511, tölvupóstur magnus@jofur.is.

Kaupandi greiðir stimpilgjald af kaupsamningi, sem er 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila af fasteignamati eða samkvæmt annarri upphæð sem sýslumaður ákveður hverju sinni. Greiði kaupandi hluta kaupverðs með láni, þá greiðir hann lánveitanda lántökugjald og skjalagerðarkostnað. Kaupandi greiðir allan kostnað við yfirtöku áhvílandi lána. Kaupandi greiðir þinglýsingu kaupsamnings, afsals og veðskjala og er kostnaður við það kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Kaupandi greiðir umsýslugjald til Jöfurs ehf. að fjárhæð kr. 82.460 ,- 
Jöfur fasteignasala sérhæfir sig í faglegri ráðgjöf og þjónustu við kaup, sölu, leigu og verðmat atvinnuhúsnæðis, með persónulegri aðstoð fyrir kaupendur, seljendur, leigjendur og fjármálastofnanir. Hafðu samband í síma 534-1020 til að ræða þínar þarfir.
Hafðu samband
sala@jofur.isS: 5341020
Suðurlandsbraut 4a
kt. 510507-0960
Hlekkir
© Copyright 2025 - Jöfur
Knúið af
Fasteignaleitin