Til leigu 540 m² lager- og iðnaðarhúsnæði við Dofrahellu 7 í Hafnarfirði. Endabil. Laust strax.
Malbikað bílaplan er við húsið.
Húsnæðið skiptist í tvo stóra sali með tveimur stórum innkeyrsluhurðum (5 x 5 m.). Kaffistofa, starfsmannaaðstaða og salerni innst í húsnæðið. Inngöngudyr eru í báðum endum á húsnæðinu.
Mögulegt er að setja upp brúkrana eða hlaupakött í húsnæðinu.
Lofthæð í sal 6-7 m. Möguleiki er á að koma fyrir aukalega um 100 m² millilofti fyrir ofan skrifstofu og starfsmannaaðstöðu. Olíuskilja fyrir niðurföll er til staðar.
Engin milliloft til staðar en hægt að bæta þeim við síðar.
VSK leggst á leiguverð.
Hafðu samband við Magnús Kristinsson, löggiltan fasteignasala og leigumiðlara í síma 861-0511, magnus@jofur.is eða Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala og leigumiðlara í síma 824-6703, olafur@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.