Til leigu um 380 m² skrifstofuhúsnæði á 3. hæð við Borgartún. Laust strax!
Nánari lýsing: Skiptist upp í stórt opið skrifstofurými, tvö rúmgóð fundarherbergi, eitt lokað viðtalsherbergi, stóran fundarsal sem hægt er að breyta í opið skrifstofurými, rúmgott eldhús með innbyggðum kæliskáp og uppþvottavél, snyrtingar með sturtuaðstöðu ásamt ræstiaðstöðu. Á gólfum eru teppaflísar en parket á eldhúsi. Kerfisloft og lýsing í loftum. Góðar nettengingar til staðar. Næg bílastæði eru á lóð hússins.
VSK leggst við leigufjárhæðina.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali, s. 897 7086 hmk@jofur.is eða Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali, s. 824 6703 olafur@jofur.is