Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
Tilboð
Skrifstofuhúsnæði
0 herb.
2600 m2
Tilboð
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
0
Fasteignamat
0

Jöfur atvinnuhúsnæði s. 534-1020 kynnir: 

Til leigu um 2.600 m² nýtt skrifstofuhúsnæði á 7 hæðum (hver hæð um 420 m² brúttó, efsta hæðin 7. er inndregin með svölum og er mun minni að flatarmáli) auk lagerrýmis og annarra stoðrýma í kjallara í nýbyggðu og glæsilegu húsnæði við Grensásveg 1 gegnt Álfheimum/ Glæsibæ. Áætlað er að húsnæðið verði tilbúið til afhendingar á síðari hluta þessa árs 2024.

Nánari lýsing: Á jarðhæð sem er með aukinni lofthæð verður hægt að skipta upp í tvo aðskilin leigurými. Á hverri hæð frá 2. - 6. hæð verður gert ráð fyrir opnum vinnurýmum, lokuðum skrifstofuherbergjum og fundarherbergjum, kaffistofum/ eldhúsum með borðsal, snyrtingum og öðrum rýmum að ósk væntanlegs leigjanda. Við hönnun á húsnæðinu var lögð mikil áhersla á að skapa góða hljóðvist, loftgæði og vandað efnisval á væntanlegum innréttingu, gólfefnum, loftaefni og lýsingu.
Aðgengi verður að 183 bílastæðum í samnýttri bílageymslu á þremur hæðum neðanjarðar og veður fyrirkomulagið með þau leigustæði til langtíma og einnig verða skammtímabílastæði í boði innan dagsins fyrir viðskiptavini og gesti. Áhersla verður lögð á skilvirkni og einfaldleika varðandi fyrirkomulag með greiðslur fyrir bílastæðin. Tvær lyftur sem eru hlið við hlið munu þjóna skrifstofuturninum eingöngu. Til greina kemur að leigja út húsnæðið í minni einingum, þ.e. 2-3 hæðir saman.
Stór hjólageymsla verður á efstu hæð kjallara hússins fyrir skrifstofu- og önnur atvinnurými og íbúðir sem eru í húsinu. Áætlun er um að setja upp rafhleðslustöðvar í bílageymslu ásamt því að bjóða leigjendum atvinnuhúsnæðis upp á aðgang að deilibílum til þess að fá sem besta samnýtingu á bílastæðum/ verðmætum hússins. Þessi glæsilega skrifstofubygging er vel staðsett í beinu framhaldi af öðrum byggingum við Suðurlandsbrautina og setur nú þegar sterkan svip á götumyndina.

VSK leggst við leigufjárhæðina.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson, löggiltur fasteignasali í síma 897 7086 tölvupóstur [email protected] eða Ólafur Jóhannsson, löggiltur fasteignasali í síma 824 6703 tölvupóstur [email protected]


Hafðu beint samband við starfsmenn Jöfurs:
Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali - 863-5868
Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali - 897-7086
Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali - 824-6703
Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali - 861-0511

Kynntu þér fleiri eignir og þjónustu Jöfurs atvinnuhúsnæðis á www.jofur.is

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.